RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

miðvikudagur, júlí 03, 2002

Jæja, það er kominn miðvikudagur. Ég var að spá í að kynna mig ef einhverjir sem ég þekki ekki myndu álpast hingað. Ég heiti Rebekka og er 26 ára grafarvogsbúi. Ég hef rosa gaman af lífinu því það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast. T.d. er ég að fara í sumarbústað næstu helgi og verð þar heila viku :) svo strax helgina eftir fer ég vestur á Ísafjörð. Og á miðvikudeginum þar á eftir þá dadadada FER ÉG Á BENIDORM í tvær heilar vikur. Púff það er varla að maður geti beðið. En svona er lífið, eintóm hamingja. Og þar sem ég er frekar mikill djammari og er ekkert á leiðinni á djammið í Reykjavíkinni, þá býst ég við að fólkið sem ég þekki af djamminu eigi eftir að halda að ég sé annaðhvort dauð eða hreinlega hætt að djamma (GLÆTAN), I´ll be back!!!!!!!!!!!!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home