RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

föstudagur, nóvember 29, 2002

Jæja það er kominn föstudagur. Og ég er á leið í Djúpu laugina aftur í kvöld. Nú verður þetta kannski auðveldara, sitja bara í sófa og blaðra. Ég ætti nú að fara létt með það sko. Hjalti, þú getur afpantað öll borðin sem þú varst búinn að panta á Skólabrú esskan, við fáum ekki borð í kvöld ;o( þannig að það verður ekkert gaman hjá ykkur.....
En í gær fór ég á útgáfutónleikana hjá Írafár með Dísunni minni og við skemmtum okkur konunglega innan um alla píkuskrækina. Meðalaldurinn var svona 12 ára hehe. Svo var okkur boðið á Gaukinn í ískaldan Tuborg. Það bætti kvalir kvöldsins upp.
Ég er að pæla í að hrynja bara í'ða í kvöld.....Hefur nokkur á móti því?? Útborgunardagur og svona. Kalli segir að ég sé svo svaðaleg óreglumanneskja, ég er farin að hallast að því að hann hafi rétt fyrir sér ;o)
Nördar, hvað er planið hjá ykkur í kvöld??? Er Doddi kannski drukknaður í bókunum???

Well að venju, SPRIKL AWAY!!!
Reebok óreglumanneskja með meiru......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home