RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

miðvikudagur, desember 11, 2002

Jæja ég var að lenda í fyrsta árekstrinum mínum á ævinni (ef frá er talinn áreksturinn á vegginn í Kringlunni á Skódanum....). Fjögurra bíla árekstur á Miklubraut. Bíllinn minn er kássa (eða svona allt að því, hann var nú ekki fagur fyrir..). Minningarathöfn verður auglýst síðar. Ég er að pæla í að kíkja við á slysó á eftir að kanna skemmdirnar á mér....... NÚNA eiga sko allir að vera góðir við mig!!!!!
Annars er ég búin að vera ágætlega heilbrigð í dag. Salat í hádegismat og kjúlli hjá Dísunni minni í kvöldmat. Ég er alltaf svo heppin, Dísan er svo góð að gefa mér að eta á miðvikudögum ;o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home