RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

Þvílík öfgatrú sem karlmenn geta haft á sjálfum sér!!!! Hahahhahhaha ;o)
Eldri maður giftist mun yngri konu og voru þau mjög ástfangin. Gallinn var þó sá að hversu mikið sem þau reyndu gat maðurinn ekki veitt spúsu sinni fullnægingu í rúminu. Ákváðu þau því að leita læknis. Sá hafði ráð undir rifi hverju og eftir að hafa hlustað á söguna ráðlagði hann þeim að ráða til sín ungan og glæsilegan mann. "Á meðan þið njótið ásta skuluð þið fá hann til að veifa handklæði yfir ykkur, ímyndunarafl konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fá sterka fullnægingu."
Hjónin ákváðu að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu. Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn sem ráðlagði þeim að skipta um hlutverk. "Nú skuluð þið fá unga manninn til að njóta ásta með konunni á meðan þú veifar handklæðinu," sagði hann við gamla manninn.
Aftur ákváðu þau að reyna að fara að ráði læknisins og fór ungi maðurinn í rúmið með konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu það til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur og aftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi. Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn. "Þarna sérðu," sagði hann
sigri hrósandi. "Það er SVONA sem maður á að veifa handklæði."

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home