RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

þriðjudagur, mars 25, 2003

Jæja mar er bara vaknaður svona fyrir hádegi ótrúlegt en satt. Ástæðan er reyndar mjög einföld. Þurfti að mæta í foreldraviðtal niðri í leikskóla kl. 9 í morgun. Og þar var mér tjáð að sonur minn væri fyrirmyndabarn. Ekki það að ég hafi ekki vitað það fyrir en alltaf gaman að fá hrós fyrir gott uppeldi ;o) Ég vildi samt óska að hann væri jafn þægur heima hjá sér eins og hann er greinilega í leikskólanum hahahaha. En ég er á leiðinni til húðlæknis á eftir og hann ætlar að fara að gata mig. Djí eins og mar sé ekki með nóg af götum. En það verður víst saumað fyrir þetta aftur sem betur fer. Annars er ég svo mikil hæna að það á örugglega eftir að líða yfir mig.
Svo verður mar víst að skella sér í heimsóknartíma á spítala í borginni þar sem hún kellingin hún mútta mín liggur eftir botnlangaskurð í gærkvöldi. Ég verð bara að segja úlfur, úlfur!! Ok smá einkahúmor sem mörið skilur væntanlega ;o)
Svo er það bara skólabekkurinn í kvöld. Ansi fjölbreyttur dagur get ég sagt.

Well HÆNaway!!!

P.s. það er kominn snjór. Allir út að renna sér!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home