RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

miðvikudagur, júlí 30, 2003

FASTEIGNAHORRORINN FRAMHALD........

Jæja það er komið framhald.... Bjóst einhver við öðru??? Muniði það sem ég skrifaði að húsbréfin ættu að verða tilbúin á þriðjudag með þessari blessuðu flýtimeðferð?? Já og það var í gær og ekkert heyrðist frá þeim í gær. Í dag hringdi ég enn eina ferðina og var mér gefið samband við bjúgað. Hún segir mér að þetta sé ekki enn komið úr þinglýsingu en ætti að koma í dag. Hún sagðist ætla að reka á eftir sendlinum og hafa svo samband við mig. Og gerði hún það??????? NEI AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI!!!!!! Nú vantar klukkuna 10 mín í 5 og fasteignasalan lokar kl. 5. Ég er komin með ógeð á að hringja þarna niðureftir. En nú þegar ég er sest niður við tölvuna þá ætla ég að senda tölvupóst á eigandann og þar sem ég er EKKI í góðu skapi þá verður þetta örugglega harðort bréf!!!!
Og BTW, ég hef ekki áhuga á að vernda þessa fasteignasölu lengur og gef það upp hér með að þessa þjónustu fáiði hjá FOLD!!!! Nú þegar hafa 2 manneskjur tilkynnt mér það að viðskipti við þessa fasteignasölu í framtíðinni munu ALDREI verða hjá þeim. Sem sagt nú þegar hafa þau misst 3 væntanlega kúnna í framtíðinni. Eru fleiri með?????

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home