RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

þriðjudagur, október 28, 2003

Það er byrjað að snjóa hér í sveitinni. Læt því einn vetrarbrandara fylgja með fyrstu snjókornunum ;o)

Síðasta vetur, þegar hráslagalegt hafði verið um hríð, ákváðu hjón ein að flýja vetur konung í viku og pöntuðu sér ferð suður í höf. Þannig atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar en ætlað var en eiginmaðurinn flaug á undan..

Þegar kallinn er kominn á hótelið rífur hann upp ferðatölvuna og skrifar strax bréf til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í adressunni og lenti bréfið hjá ekkju einni sem nýbúin var að jarðsetja sinn heittelskaða. Ekkjan sem rétt var búin að jafna sig eftir athöfnina, var í þann mund að líta eftir samúðarkveðjum þegar bréfið barst......

Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og þetta stóð ritað á skjáinn:

Til: Konu minnar sem eftir var
Frá: Manninum þínum sem fór á undan
Efni: Er kominn á áfangastað

Elskan,

Er kominn heill á húfi. Er búinn að kynna mér allar aðstæður og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun. Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju. Ástarkveðjur,

Þinn eiginmaður.

P.S. Fjandi heitt hérna niður frá

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home