RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

miðvikudagur, desember 10, 2003

Jæja nú er langt síðan síðast. Úff en mar er nú á fullu í prófum og er því alveg löglega afsakaður. Var í næstsíðasta prófinu áðan og það síðasta er á föstudaginn. Þá verður rúllað beint í bæinn og farið á jólahlaðborð með bekknum á Apótek. Þá verður tekið á því.
En héðan er allt gott að frétta. Búið að vera mikið streð að læra en vá ég veit ekki hvað ég á að gera í næstu viku. Þá verð ég búin með prófin en krakkarnir verða í skólanum út þá viku. Ætli ég eigi ekki bara eftir að sofa í viku og búa mig undir jólaösina. Er nebblilega að fara að vinna í Kringlunni um jólin og þar er alltaf nóg að gera. Þannig að ef þið eruð í Kringlunni um jólin þá endilega kíkja við. Verð í MEBA á þönum með jólasveinahúfu á hausnum.
Síðasta föstudag var ammili hjá skólanum mínum. Allir klæddu sig fínt upp og ætluðu sko að passa sig að drekka ekki mikið þar sem það var stærðfræðipróf á mánudeginum eftir. En mar má ekki taka of djúpt í árinni með svona ákvarðanir. *roðn* Allir urðu þetta líka fullir og það var tjúttað fram eftir nóttu með Óla grís og Dorrit ektafrú hans. Ekkert smá stuð á liðinu enda Upplyfting að leika fyrir dansi.
Jæja ætla að þykjast fara að læra eða bara eitthvað annað.


Lov jú oll

PrófAWAY !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home