RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

fimmtudagur, mars 31, 2005

Hermaur

Stal þessu af síðu hjá sætum strák. Mikið til í þessu ;o)

KANNSKI

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið,
svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.

Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.

Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án
þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt
eitt besta samtal ævi þinnar.

Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við
missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum
saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást
tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum
fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist
ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.

Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að
láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum,
en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.

Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna
þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti,
það getur blekkt. Ekki fara eftir auðæfum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.

Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.

Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig
grátandi."

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home