RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

sunnudagur, ágúst 07, 2005


Geisp

Erfið helgi maur. Búin að vera allt of mikil leti hér á bæ. Ég og skotta einar í kotinu og búnar að hafa það fínt. Á föst kíkti ég með Guðrúnu Elínu Guðmundsdóttur, Kristínu Ýr og Simma í smá partí hjá Hjalta Biker 2. Ágætispartí þar á ferð. Við vorum 8 en þó náðum við að taka einar 102 myndir. Þær á ég eftir að ritskoða (að ósk eins partígesta) og setja svo hér inn. Laugardagurinn fór að mestu í sof þar sem ég er enn ekki búin að ná fullum svefni eftir erfiðleika síðustu helgar. Var svo boðið í mat til Guðrúnar Elínar Guðmundsdóttur og svo viðtók rólegt kvöld með skottu að horfa á Madagaskar þó ég hafi nú ekki verið skemmtilegasti tv-gláparinn, sofnaði að sjálfsögðu í miðri mynd skottu ekki til mikillar ánægju þar sem það var svoooo margt fyndið í myndinni sem hún ætlaði loks að fá að sýna mér. Þannig að strax í morgunsárið var kveikt á myndinni aftur og náði ég heldur ekki að klára myndina í það skiptið. Kannski ég reyni aftur í kvöld ;o)

Annars var ég að henda löpp í ofninn og ætla að bjóða Guðrúnu Elínu Guðmundsdóttur og börnum í mat, kominn tími til. Ég er búin að vera hálfgerður fastagestur við hennar matarborð síðustu mánuði.

Well að venju -----lovuoll-----

löppAWAY

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home