Túddúrú
Wellí allt að gerast. Eins og segir hér fyrir neðan er þessi vika algjört lufs. Brjálað að gera að skipuleggja veturinn í Skólafélaginu og reyna að raða þessu öllu saman. Fyrsta vikan hér hjá öðru árinu er markaðsvika, svosem ekki mikið að gera í því, einn fyrirlestur á dag og stutt verkefni á föstudaginn.
Á sunnudaginn var smá djammerí á kaffihúsinu, fínt stuð þar. Svo var nýnemakvöldið á mánudaginn með tilheyrandi veitingum í hálfslítra umbúðum ;o) voða stuð þar. Í gær var líka eitthvað djamm á kaffihúsinu en þar sem ég breyttist í sófa í gærdag var ég nú bara í stofunni hjá mér í allan gærdag og gærkvöld. Já stelpan kann víst að vera róleg líka huhummmmmmm........ Svo er aftur rólegheit í kvöld, hrísgrjónaát og kókdrykkja. Spurning um einn spider fyrir svefninn, púff já Guðrún: þú mátt leggja mig inn!!!! Kræst hvað þessir helv..... kaplar geta gert mann húkkt á sér..... blaaaaa kann ekki að hætta, spurning um að deleta honum bara úr tölvunni. Vá þá mundi ég endanlega deyja held ég bara eða allavega fá alvarleg fráhvarfseinkenni.
Grillveisla hjá Framsókn á morgun og svo ball í Hreddanum. Held þetta verði allt saman mjög fínt bara. Svo ætlar Vigga að bjóða okkur stelpunum í löpp um helgina sem gladdi mig alveg heilmikið þar sem jú löpp er uppáhaldsmaturinn minn vííí.
Sof versus spider - það er spurningin.......
spideAWAY
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home