RebZ, villikisi með meiru :o)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....

fimmtudagur, febrúar 09, 2006


Eru til gáfaðar ljóskur? Tja mar spyr sig.....

Ljóska labbar inn í banka í New York og biður um að fá að tala við yfirmann í Lánadeild. Hún segist ætla til Evrópu í 2 vikur og þurfi að fá lánaða 5000 dollara. Lánastjórinn segir að bankinn þurfi eitthvað frá henni í staðinn sem tryggingu. Þá lætur ljóskan hann fá lykla af Mercedes Benz SL 500 sem hún á. Bíllinn var lagður fyrir framan bankann og þeir fara og skoða hann og allt, svo samþykir lánastjórinn að taka bílinn sem tryggingu. Bankastjórinn og allir starfsmenn bankann njóta þess að hlægja að henni fyrir að nota 110.000 dollara Benz sem tryggingu fyrir 5000 dollara láni. Starfsmaður bankans býðst til að taka bílinn og leggja honum í neðanjarðar bílageymslu bankans.

2 vikum seinna kemur ljóskan og borgar til baka þessa 5000 dollara auk 15,14 dollara í vexti. Þá kemur Lánastjórinn og segir við hana að hann sé glaður yfir að þetta hafi allt gengið vel en sagði við hana að hann hefði látið rannsaka hana og séð að hún væri milljarðarmæringur. Og hann spyr: "Afhverju varstu að fá lánaða 5000 dollara en lagðir 110.000 dollara bíl sem tryggingu?" Þá segir hún: "Hvergi annarstaðar í New York get ég lagt bílnum mínum í bílageymslu í 2 vikur fyrir 15,41 dollara og búist við því að hann sér þar þegar ég kem til baka."

Já og áfram Silvía Nótt......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home