Punktar vikunnar
- Mig langar enn sjúklega mikið í hvítu SÆTU tölvuna. Er þó ekki enn búin að kaupa hana.
- Veit að ég á eftir að freistast til að kaupa mér nýja tölvu í Kína ef ég geri það ekki áður en ég fer. -Sannfæring- => betra að gera það hér heima til að fá ábyrgð ræt????
- Það er brjálað að gera í skólanum þessa vikuna. Kennarar hrúga inn verkefnum sem aldrei fyrr. Gubb gubb er með letuna á hæsta stigi.....
- Svefnsýki mín fer vaxandi. Hef enn ekki fundið töframeðal við að koma sér á lappir.
- Einnig þjáist ég af átunni þessa dagana, þó er ég ekki ólétt ef einhver ætlar að fara að koma með fyndin komment!!!
- Þrátt fyrir svefnsýki tekst mér ekki að koma mér í rúmið á kristinlegum tíma.
- Ég var minnt á það í dag að vera alltaf með grímu í Kína. Eins gott að ég fékk svoleiðis í afmælisgjöf :)
- Já og tölvan mín er komin í lag. Það þurfti "bara" nýtt lyklaborð.
- Mig langar samt í nýja tölvu.
- Ég fór í Singstar um helgina og pirraði nágranna mína ógurlega með "sönghæfileikum" mínum.
- Ég fór út í kvöld á náttbuxunum. Reyndar bara í næsta hús en gaman að segja frá því ;)
- Ég las viðskiptasiðfræði um helgina. Þessi bók er ómannúðleg!
- Ég er búin að endurraða í stofunni hjá mér enn einu sinni.
- Ég gleymdi að gefa froskunum að éta um helgina, fattaði það á sunnudagskvöldið en þeir voru sem betur fer ekki fljótandi á hvolfi.
- Ég er farin að horfa of mikið á sjónvarp, má eiginlega segja að ég sé orðin háð nokkrum þáttum :(
- Systir mín á von á sínu öðru barni. "Hún" á að koma í heiminn 10. ágúst en Mjúki verður tveggja ára þann 13. ágúst. Mjúki er "my lobster"
- Já og kannski punktur ársins: móðir mín er hætt að reykja. Þá er ég næst huhummmm...
- Lesið bloggið hennar Gunnellu, góður pistill þar á ferð :)
L8er :o*