Jæja þá eru Danmerkurmyndirnar loks komnar inn. Þetta eru nú mest einhverjar partímyndir huhumm. Enjoy ;o)
myndAWAY
Of mikið af húsverkum valda heilaskaða....
Getur þú sagt mér af hverju:
- ég nota bara helminginn af rúminu mínu þótt ég hafi það allt út af fyrir mig?
- ég hlusta enn á Eurovisionlög frá 2003?
- ég þarf alltaf að lesa áður en ég sofna?
- mér finnst leiðinlegt að taka til?
- ég þvæ mér um hárið á hverjum degi?
- ég á enn 2 ketti þótt ég sé að verða geðveik á hárunum?
- ég er orðin kertasjúk?
- ég horfi mjög sjaldan á sjónvarp?
- mig langaði að klippa af mér nefið þegar ég var 7 ára?
- ég hef einungis brotið eitt bein frá fæðingu?
- ég set mig á away á msn ef ég er í vondu skapi?
- ég drekk kók með öllu?
- ég er með kreditkort sem ég nota eiginlega aldrei?
- ég lifi fyrir að borða?
- ég elska að vera single þótt ég verði stundum þreytt á því?
- ég sagðist ætla að verða búðarkona þegar ég yrði stór?
- mamma segir að ég líkist Björk?
- ég hef aldrei þolað að vera miðjubarn?
- sumir eru hræddir við mig?
- ég fíla gaura sem eru "kind of a Baldwin"?
- uppáhaldsliturinn minn er blár?
- uppáhaldstalan mín er 6?
- ég elska að vera sporðdreki?
- ég var svo feimin sem barn að ég gat varla talað við fólk?
- ég elska að ferðast?
- ég var einu sinni skotin í Kára Sturlu og Andra Snæ?
- ég ætlaði að giftast Michael Jackson?
- ég fór ekki á Robbie Williams tónleikana þótt ég dýrki hann?
- ég naga á mér naglaböndin?
- löpp er uppáhaldsmaturinn minn?
- ég kalla mig Villikisa?
- ég er með græn augu?
- ég kaupi stundum skúffu af freyjum?
- mig langar stundum í kærasta?
- ég er haldin fullkomnunaráráttu?
- ég er hrædd við mótorhjólið mitt?
- ég er með Playboy kanínu á tönninni?
- ég átti snjóþveginn gallajakka?
- ég er mjög þrjósk?
- ég spái í að klósettrúllan snúi rétt?
- ég á 2 vini sem heita Hjalti og þeir eiga báðir mótorhjól?
- ég þoli ekki fólk sem lýgur?
- ég faldi mig í rúmfataskúffu þegar ég var 13 ára til að mamma héldi að ég væri flutt að heiman?
- mér er illa við hunda?
- ég er hrædd við skordýr?
- ég á lobster sem heitir Mjúki?
- ég trúi á miðla?
- ég strokaði út skipateikningu sem pabbi var búinn að vera marga tíma að teikna þegar ég var 5 ára?
- ég er Fylkis-, BMW Williams- og Everton-meðhaldari?
- ég ætla að skíra næsta son/kött/hamstur sem ég eignast Trefil?
- mér finnst tískubylgjur í mannanöfnum hallærislegar?
- ég borga 410.000 krónur í skólagjöld á ári?
- ég fékk skólastyrk í fyrra?
- mér finnst fetaostur guðdómlegur?
- ég þoli ekki mánudaga?
- ég virði þá vini mína sem ég get treyst og standa með mér?
- mér finnst kjaftasögur gera lítið úr segjandanum?
- ég þarf að láta afturkalla veiðileyfið mitt?
- ég er með sólarofnæmi og pensilínofnæmi?
- ég er með sætar tær?
- mér finnst strákar sem þora að segja það sem þeir hugsa merkilegri en aðrir?
- helsta áhugamál mitt er svefn?
- mig langar að stökkva úr flugvél í fallhlíf?
- mér finnst stærðfræði æðisleg?
- ég er stúdent í dönsku en tala samt ekki stakt orð í henni?
- ég er líka stúdent í jarðfræði?
- mér finnst Jakob Sveistrup flottastur?
- ég átti einu sinni fluff?
- mér finnst beljur cool?
- mér leiðast Star Wars og þess háttar myndir?
- uppáhaldsmyndin mín er Pretty woman?
- uppáhaldsbókin mín er Á hverfanda hveli?
- ég elska fimmtudaga?
- ég drekk bjór með röri?
- ég verð tuttuguogtíu ára í nóvember?
- mér líður eins og ég sé fertug þegar ég fer á Oliver?
- ég fíla sumt fólk einfaldlega ekki?
- ég á óvini?
- ég á enn betri vini fyrir vikið?
- ég er vinur vina minna en óvinur óvina minna?
- ég hélt einu sinni Orraleika?
- ég á systur sem er mörgæs, mág sem er selur og frænda sem er púki?
- ég var kölluð Rebbi Fox í menntaskóla?
- ég hét Jane-FoX á ircinu?
- ég hef samið 2 lög, annað heitir HOMMAR og hitt SNABELSKO MEÐ SPISETO?
- mér finnst faggar of góðir til að hætta?
- ég dýrka börnin mín?
- ég vann fyrir Kára Stefáns?
- ég hef fjórum sinnum unnið í HHÍ og tvisvar í Lottó?
- ég vann ferð á MTV music awards í Stokkhólmi 2000 á FM957?
- mér finnst Feneyjar merkilegasti staður sem ég hef komið til?
- mig langar ýkt á formúlu 1 keppni?
- ég hét einu sinni Óli í nokkra daga?
- ég er áskrifandi í Hvalfjarðargöngin?
- ég er ástfangin af nýja bílnum mínum?
- mér finnst FRIENDS spilið frábært?
- ég fer alltaf of seint að sofa?
ALL = ME
That's not even a woooooooooord!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
monicaAWAY